Nýtt húsnæði formlega vígt

Elst og yngsti klipptu á borðann.
Elst og yngsti klipptu á borðann.

Stórum áfanga var náð í gær þegar nýtt húsnæði sem mun hýsa félagsmiðstöð og frístund var formlega vígt. Elsti og yngsti nemandi skólans, þau Guðný Hanna Sigfúsdóttir og Þór Ramón Abreu Josesson klipptu á borðann og gestir gengu þá inn til að skoða innandyra. Byggingin fékk nafnið Miðgarður í kosningu meðal nemenda.

Frístundin verður aðallega á efri hæð hússins en félagsmiðstöðin á þeirri neðri. Stefnt er að því að ljúka frágangi leiksvæða næsta vor.

Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, flutti ávarp við vígsluna. Hún sagði opnunina marka stór tímamót fyrir skólasamfélagið og þjónustu við barnafjölskyldur. Hún lagði áherslu á að þrátt fyrir umfang framkvæmdarinnar væri tilgangurinn fyrst og fremst að bæta lífsgæði barna og fjölskyldna.

Heildarkostnaður framkvæmdarinnar er rúmar 800 milljónir króna, að meðtöldum lóðarframkvæmdum og er þetta stærsta einstaka byggingarframkvæmd sveitarfélagsins frá viðbyggingum við Borgarhólsskóla um 1990.

Við erum ákaflega ánægð með þessa kærkomnu viðbót við Borgarhólsskóla, bæði stórbætta aðstöðu fyrir félagsmiðstöð og frístund auk þess lóð og leiktæki samhliða framkvæmdinni.

Til hamingju með þennan áfanga.