- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Það er rík hefð fyrir skólasamkomu í skólanum. Þar koma nemendur fram með atriði, dans og söng. Samkoman er liður í fjáröflun nemenda sjöunda bekkjar sem fer í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Dagskráin var fjölbreytt að vanda.
Nemendur fyrsta bekkjar fluttu lagið Í réttu ljósi úr Ávaxtakörfunni eftir Þorvald Bjarna Þorvaldssons við texta Kristlaugar Sigurðdóttur og Valgeirs Skagfjörð.
Nemendur í þriðja bekk dönsuðu valda dansa við lagaspyrpu og nemendur úr fimmta bekk spiluðu og sungu í upphafi samkomunnar. Stærsta atriðið á samkomunni venju samkvæmt er leikrit sjöunda bekkjar.
Nemendur settu upp útgáfu af Dýrunum í Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner í leikstjórn Arnþórs Þórsteinssonar. Verkið þekkja flest en það var frumsýnt á Íslandi árið 1962.
Nemendur hafa verið að æfa verkið undanfarnar vikur með aðstoð frá kennurum og foreldrum. Nemendur sáu sjálfir um ljós og hljóð með aðstoð frá eldri nemendum og leikstjóra auk þess að græja búninga og leikmuni sjálf. Leikmyndin var hin skemmtilegasta og lifandi. Nemendur sýndu sérstaka sýningu fyrir nemendur Grænuvalla.
Hvert og eitt, í hvaða atriði sem er sigrar sjálfan sig með því að koma, syngja, dansa og leika. Þess vegna er mikilvægt að halda í þessa hefð. Til hamingju með samkomuna kæru nemendur.









|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
