- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Samkvæmt fyrstu grein laga um Þjóðleikhúsið er það eign íslensku þjóðarinnar. Þjóðleikhúsið skal í starfsemi sinni leitast við að vekja og auka áhuga landsmanna á þessum leiklist. Reglulega býður Þjóðleikhúsið börnum á miðstigi grunnskóla í leikhús. Að þessu sinni er boðið upp á glænýja sýningu af Orra óstöðvandi, en hún byggir á geysivinsælum bókum Bjarna Fritzsonar um Orra og vinkonu hans Möggu Messi.
Aðstandendur sýningarinnar eru á faraldsfæti þessi misserin og nýlega komu þau til Húsavíkur með sýninguna og nutu nemendur fjórða til sjöunda bekkar sýningarinnar í Samkomuhúsinu á Húsavík.
Orri er ungur drengur sem breytir sér í ofurhetjuútgáfuna af sjálfum sér, Orra óstöðvandi, þegar hann þarf á hugrekki og sjálfstrausti að halda. Orri og Magga lenda í alls konar ævintýrum, hversdagslegum jafnt sem ótrúlegum, og eru uppátækjum þeirra engin takmörk sett.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |