- Skólinn
 - Nemendur
 - Foreldrar
 - Jákvæður agi
 - Bland í Borgó
 - Farsæld barna
 - Byrjendalæsi
 
Öskudagur er upphafsdagur lönguföstu, miðvikudagurinn í 7. viku fyrir páska. Dagsetning hans getur sveiflast á milli 4. febrúar til 10. mars. Að þessu sinni ber daginn upp á þriðja mars sem er í seinna lagi.
Kennt var fram að hádegi. Að loknum hádegisverði fóru nemendur saman í hópum í fyrirtæki og stofnanir til að syngja og safna mæru. Járnmaðurinn, Hulk, Mirabel, læknir eða lögga. Nemendur voru duglegir að mæta í búningum í skólann og starfsfólk sömuleiðis. Nemendur skólans komu saman á söngsal í dag og tóku vel undir.
Nemendur sjötta bekkjar slá upp öskudagsballi í Íþróttahöllinni síðar í dag. Þar verður kötturinn sleginn úr tunnunni og hægt að gæða sér á veitingum. Hirðljósmyndari skólans fór á stúfana og náðu nokkrum myndum sem má sjá HÉR.
| 
 Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is  | 
 Skrifstofa skólans er opin frá   | 
