- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Nemendur annars bekkjar skemmtu samnemendum, foreldrum og öðrum gestum á Sal í morgun. En þau hafa verið að læra um klukkuna, lesa bókina Tóta og tíminn eftir Bergljótu Arnalds og tengja það við Byrjendalæsi. Auk þess tengt vinnuna við stærðfræði og vinnu í Sprota. Salarskemmtunin samþætt við námið og því sett upp leikrit úr bókinni.
Það rýmar vel við hæfniviðmið eins og að þekkja heilu tímana á skífuklukku og þá hálfu líka. Jafnframt má tengja salarskemmtun við lykilhæfni eins og að vinna að fjölbreyttum verkefnum á skapandi hátt, gera sér grein fyrir ólíkum hlutverkum í samstarfi, sýnt frumkvæði í verkefum og beðið um aðstoð eftir þörfum. Og að hlusta á aðra, sýnt tillitsemi og haldið sig við umræðuefni.
Skemmunin var hin besta og ánægjulegt að sjá hversu mörg lögðu leið sína til okkar í skólann. Hafið þakkir fyrir það.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
