- Skólinn
 - Nemendur
 - Foreldrar
 - Jákvæður agi
 - Bland í Borgó
 - Farsæld barna
 - Byrjendalæsi
 
Nemendur tíunda bekkjar frumsýndu verkið Sendu mér SMS í Gamla Samkomuhúsinu í dag. En liður í fjáröflun þeirra er uppsetning á leikriti. Karen Erludóttir leikstýrði og í hljómsveit eru þeir Daníel Borgþórsson, Jón Gunnar Stefánsson og Ragnar Hermannsson en Daníel og Ragnar eru foreldrar í árgangnum. Sögusviðið er töðugjaldadansleikur í ónefndu félagsheimili úti á landi þar sem margar litríkar persónur koma við sögu. Tónlist og söngur er því í miklu aðalhlutverki en tengt saman með spaugi og stuttum atriðum. Höfundar verksins eru þeir Bjartmar Hannesson og Hafsteinn Þórisson.
Húmorinn og atriði vísa gjarnan til ársins 2009 og þar í kring, fullt af beittum færslum í bland við skrautlegar staðalímyndir þess tíma. Krakkarnir standa sig með sóma á sviðinu í leik og söng og við hvetjum fólk til að kíkja í Gamla Samkomuhúsið. Við viljum þakka Leikfélagi Húsavíkur fyrir samstarfið. Til hamingju með sýninguna krakkar.
| 
 Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is  | 
 Skrifstofa skólans er opin frá   | 
