Skólabyrjun / School is starting

Skólabyrjun verður með óhefðbundnum hætti þetta skólaárið. Vegna sóttvarnarráðstafana mæta nemendur án foreldra. Fyrsti skóladagur er næstkomandi mánudag, 24. ágúst.  Nemendur í fyrsta, öðrum og þriðja bekk mæta í skólann kl. 8:30. Nemendur í fjórða til og með sjöunda bekk mæta í skólann kl. 9:15 og nemendur í áttunda, níunda og tíunda bekk mæta í skólann kl. 10:00.

Nemendur mæta í sal skólans og hitta umsjónakennara og við tekur kennsla samkvæmt stundaskrá. Í yfirstandandi viku bjóða kennarar nemendum að mæta í skólann ásamt foreldrum til að skoða aðstæður áður en skóli hefst.


Athugasemdir