Skólastarf eftir 4. maí

Tilkynnt hefur verið um afléttingu takmarkana á skólastarf. Nú er ljóst að skólastarf tekur breytingum eftir 4. maí. Skólastjórnendur undirbúa þær breytingar sem munu eiga sér stað og tilkynna um leið og þær liggja fyrir. Þegar takmarkanir á skólahaldi falla úr gildi verður starf grunnskóla með hefðbundnari hætti. Áfram verða almennar sóttvarnarráðstafanir í skólum, sem og annars staðar, og skólar fylgja viðbragðsáætlunum sínum varðandi mögulegt smit. Neyðarstigi almannavarna vegna COVID-19 er áfram í gildi.

Fjöldatakmarkanir í nemendahópum verða ekki lengur í gildi og nemendur geta notað sameiginleg svæði, s.s. útisvæði og mötuneyti óhindrað. Fjöldatakmarkanir gilda þó um fullorðna sem starfa í grunnskólum, þ.e. 2 metra fjarlægð og hámarksfjöldi fullorðinna einstaklinga er 50 í hverju rými. Mælst er til þess að skólar og foreldrafélög skipuleggi ekki fjölmennar samkomur út þetta skólaár og takmarki almennt gestakomur í skólana.

Sjá nánar í auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farstóttar HÉR.


Athugasemdir