- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og náttúran. Íslendingar hafa aðlagað líf sitt samspili elds og ísa, dyntóttum veðurguðum og kröftugum sjávarföllum. Um leið hafa þeir notið allt umlykjandi náttúrufegurðar og haft lífsviðurværi sitt af ríkulegum gjöfum náttúrunnar. Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og eru einstaklingar, skólar, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök hvött til að hafa daginn í huga í starfsemi sinni.
Það er árviss viðburður að nemendur skólans fari í lengri gönguferðir og njóti útiveru með skipulögðum hætti í upphafi hvers skólaárs. Verkefnið er liður í að fagna degi íslenskrar náttúru sem er haldinn 16. september ár hvert. Veðurblíðan var með besta móti í dag, áttunda september á alþjóðadegi læsis og því ákveðið að nýta daginn til heilsuræktar, göngu og útiveru.
Fyrsti bekkur fór í sund venju samkvæmt. Nemendur skoða heita vatnið og fegurðina í bænum og velta fyrir sér hvernig náttúruauðlindir tengjast daglegu lífi okkar. Annar bekkur þræddi Skrúðgarðinn, upp Skógargerðisdalinn og enduðu á sjóræningjavellinum í Breiðulág. Áherslan verður á manngert umhverfi og hvernig maðurinn hefur mótað nærumhverfið. Nemendur þriðja og fjórða bekkjar gengu upp að Skálatjörn. Þar var sjónum beint að breytingum á landi og áhrifum vatns, hvernig það getur mótað landið og breytt því. Nemendur fimmta, sjötta og sjöunda bekkjar gengu upp að Botnsvatni. Nemendur kynnast ferskvatni og vatnsgæðum og mikilvægi hreins vatns fyrir náttúru og samfélag. Nemendur áttunda, níunda og tíunda bekkjar lögðu leið sína í þjóðgarðinn við Jökulsárgljúfur. Þar upplifa nemendur landmótun í stórbrotinni náttúru. Gróðurinn skartaði fallegum haustlitum og náttúruupplifunin eftir því.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
