Skylduvalgreinar til vors

Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla skal nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið sem svarar allt að þriðjungi námstímans.

Tilgangurinn með valfrelsi nemenda á unglingsstigi er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa. Val í námi skal miða að skipulegum undirbúningi fyrir nám í framhaldsskóla og taka mið af undirbúningi fyrir bóknám, starfsmenntun, list- og tækninám.

Borgarhólsskóli býður nemendum að velja á milli um 30 valmöguleika; allt frá rafíþróttum, heimilisfræði, snyrtifræði, smíðar, þáttagerð og svo margt fleira spennandi og skemmtilegt. Tónlistarnám, hverskonar æskulýðsstarf og íþróttaæfingar hjá viðurkenndum aðilum með skipulegum hætti flokkast hvort um sig sem einn valkostur. Jafnramt geta nemendur fengið hvers konar félagsstörf metin sem valgrein, s.s. sæti í nemendaráði, árshátíðarnefnd eða fjáröflunarnefnd 10. bekkjar. Atvinnuþátttaka er ekki metin.

Hver nemandi þarf að hafa 3 valgreinar eða valkosti. Í dag fengu nemendur valblað sem gildir til vors. Gert er ráð fyrir að skylduvalgreinar hefjist 8. janúar næstkomandi.

HÉR má sjá valgreinablað til útprentunar í PDF-formi eða mynd hér að neðan.

 


Athugasemdir