Staða framkvæmda við félagsmiðstöð og frístund

Framkvæmdir við nýja félagsmiðstöð og frístund ganga vel. Innandyra eru gólfefni eru klár á efri hæð og aðeins eftir á neðri hæð, pípara- og rafmagnsvinnu að ljúka og verið að vinna í uppsetningu á innréttingum. Þá er verið að setja upp hringstigann og lyfta er uppsett. Næst á dagskrá er að setja upp innihurðir, hljóðplötur og gólflista.

Utanhúss eru byggingin klár fyrir þakjárn, verið að ljúka múrvinnu og unnið að uppsetningum á þakrennum. Framkvæmdir við bygginguna eru að mestu á áætlun. Vinna við lóðarfrágang er hafinn, byrjað að reisa forsteyptar einingar sem eru á lóðinni. Verktakar hafa hraðar hendur og verkið vonandi komið langt á leið þegar skólastarf hefst eftir miðjan ágúst.