Staðfest covid-19 smit í 8. bekk

Í dag barst tilkynning um staðfest covid-19 smit hjá nemanda í áttunda bekk. Nokkrir nemendur hafa þegar fengið boð frá smitrakningarteymi Almannavarna um að fara í sóttkví og starfsfólk sömuleiðis. Skólastjórnendur óska hinsvegar eftir því að nemendur áttunda bekkjar verði heima á morgun, fimmtudag og í sóttkví þar til fyrirmæli um annað berast. Við munum senda frekari upplýsingar frá okkur á morgun og meta framhald skólahalds.

Veiran er lævís og lúmsk og vert að minna alla á að halda vöku sinni; þvo hendur og spritta og varast sameiginlega snertifleti.


Athugasemdir