Stuttmyndahátíð nemenda

Nemendur í sjötta og sjöunda bekk tóku þátt í stuttmyndanámskeiði og kynntust heimi kvikmyndagerðar. Námskeiðið spannaði tíu kennslustundir og unnu nemendur í hópum. Hóparnir þróuðu eigin hugmyndir að stuttmynd, skrifuðu handrit, útbjuggu myndhandrit og skipulögðu upptöku.

Nemendur kynntust ólíkum myndskotum og sjónarhornum ásamt því hvernig klipping, tónlist og hljóð hafa áhrif á frásögn og stemningu kvikmynda. Verkefnið er unnið á spjaldtölvur bæði upptaka og klipping.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á skapandi hugsun, sjálfstæð vinnubrögð, samvinnu og lausnaleit. Afrakstur námskeiðsins voru þrjár stuttmyndir sem nemendur fengu að frumsýna á eigin stuttmyndahátíð. Þar gafst þeim tækifæri til að njóta afraksturs vinnunnar, ræða sköpunarferlið og fagna árangri sínum og samnemenda.