Survivor leikarnir

Að vinna saman, fara út fyrir eigin þægindaramma og gera kröfur til sjálfs sín. Verkefninu Survivor árið 2020 er nú lokið. Nemendum á unglingastigi er skipt í fjóra hópa eða ættbálka; þurfa að kjósa ættarhöfingja af hvoru kyni, skapa jákvæða og góða stemningu, semja hvatningarhróp sem ber hverjum hópi byr í brjóst. Jafnframt þarf að skipuleggja þau verkefni sem bíða hópsins. Þrautir sem reyna á líkama, huga og sál. Þrautirnar krefjast þess að í hverjum ættbálki þurfa nemendur að hlaupa, stökkva, hugsa, elda, koma fram og hafa úthald og útsjónarsemi svo dæmi séu tekin.

Á meðan á verkefninu stendur eru nemendur símalausir og hafa ekki leyfi til að nota rafmagnstæki s.s. í skemmtiatriði sem hver ættbálkur þarf að bjóða upp á sem lið í keppninni að safna stigum. En verkefnið snýst um að safna stigum. Hver ættbálkur þarf að ljúka þraut til að fá stig og fást mismörg stig eftir því í hvaða sæti ættbálkurinn lendir í hverri þraut. Einnig er hægt að fá stig fyrir umgengni, hvatningarhróp o.fl. Veðurguðirnir voru okkur ekki hliðhollir en það gerði raunir nemenda enn meiri.

Verkefnið tókst reglulega vel og eru kennara stoltir af nemendum sínum og nemendur ákaflega ánægðir með verkefnið. Keppnina er ekki hægt að halda nema með velvilja samfélagsins, s.s. foreldra og fyrirtækja. Það er því ástæða til að þakka öllu því góða fólki sem hjálpaði við að gera verkefnið að veruleika að þessu sinni.

HÉR er hægt að skoða nokkrar myndir.


Athugasemdir