Svakalega hálfnuð keppni

Skólinn okkar er skráður til leiks í Svakalegu upplestrarkeppnina en það er lestrarátak sem hvetur til letur nemenda í fyrsta og með sjöunda bekk. Átakið stendur yfir frá fimmtánda september til fimmtánda október og ferlið því rétt hálfnað. Markmiðið er að nemendur lesi sem flestar mínútur og sá skóli sigrar sem hefur flestar mínútur lesnar og hlýtur titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins. Sigurvegari verður tilkynntur á degi íslenskrar tungu sextánda nóvember nk.

Blær Guðmundsdóttir, teiknari og rithöfundur og Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur standa fyrir keppninni. Verkefnið er hluti af List fyrir alla en þær stöllur komu einmitt í heimsókn í vikunni og hittu nemendur á Sal til að ræða um bókmenntir, mikilvægi lesturs, hugsunina að baki bókinni o.fl. Við þökkum þeim fyrir komuna til okkar, teljum niður dagana og nú setjum við í framdrifið og spænum í okkur lesnar mínútur.