Túnsláttur 2026

Fríða Bjartey á sviðinu
Fríða Bjartey á sviðinu

Nýlega fór Túnsláttur fram í Sal skólans en það er söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar Túns. Fjögur atriði háðu keppni en vinningsatriðið verður framlag Túns í NorðurOrg sem fer fram á Ólafsfirði 13. mars nk. Sigurvegari keppninnar var Fríða Bjartey Hjaltalín með lagið Ashes eftir Celine Dion. Við óskum henni góðs gengis.