- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
Farþegarskipið Fridjof Nansen hafði viðkomu í Húsavíkurhöfn í fjórða og síðasta skipti þetta sumarið í vikunni. Skipið er nefnt eftir norska landkönnuðinum Fridtjof Nansen sem undirbjó sig hér á landi fyrir fyrsta leiðangur yfir Grænlandsjökul árið 1888. Skipið var smíðað árið 2016 og hentar sérstaklega vel til heimskautasiglinga. Skipið gerir út á leiðangursupplifun og vísindasmiðja er um borð.
Nemendum í öðrum bekk var boðið um borð við komu Fridjof Nansen til Húsavíkur í vikunni. Nemendur fengu skoðunarferð um skipið enda margt áhugavert að sjá. Nemendur fræddust um hvernig drykkjarvatnið um borð er hreinsað, skoðuðu örverur með smásjá sem lifa í sjónum og heilsuðu upp á skipstjórann.
Krakkarnir voru sérlega kurteis og áhugasöm með margar spurningar. Enskukunnátta og -færni kom skipverjum á óvart í samskiptum um borð.
Við þökkum kærlega fyrir boðið um borð en heimsóknin heppnaðist reglulega vel. Hugsanlega er þetta vísir að samstarfi skólans, Hafna Norðurþings og farþegaskipa sem hingað koma.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |