Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Þátttakendur í undankeppni skólans
Þátttakendur í undankeppni skólans

Í vikunni fór fram undankeppni skólans vegna Stóru upplestrarkeppninnar. Verkefnið sjálft hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Þrettán nemendur 7. bekkjar öttu kappi í upplestri en keppnin fór fram í Sal skólans.

Það eru Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn sem standa fyrir keppninni á landsvísu en umsjón með verkefninu er í höndum skólaskrifstofa í hverju héraði.

Markmið með upplestrarkeppni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin sjálf er í rauninni aukaatriði og forðast skyldi að einblína á sigur. Mestu skiptir að kennarar nýti þetta tækifæri til að leggja markvissa rækt við einn þátt móðurmálsins með nemendum sínum, vandaðan upplestur og framburð, og fái alla nemendur til að lesa upp, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Stefnt skyldi að því að allur upplestur í tengslum við keppnina sé fremur í ætt við hátíð en keppni.

Á hátíðinni voru lesarar þau, Aníta Rakel Kristjánsdóttir, Birkir Leví Kristinsson, Bjartur Vignisson, Elva Rut Birkisdóttir, Guðrún Halla Jónsdóttir, Hjördís Inga Garðarsdóttir, Hrafnhildur Anna Árnýjardóttir, Inga María Ciuraj, Jakob Fróði Karlsson, Katla María Guðnadóttir, Margrét Sif Jóhannsdóttir og Sandra María Sveinsdóttir.

Fulltrúar skólans í lokakeppninni verða þau Bjartur, Hjördís Inga, Hrafnhildur Anna, Inga María og Katla María. Lokakeppnin fer fram í Safnahúsinu 6. mars næstkomandi kl. 14:00.


Athugasemdir