Útivera og upplifun

Vor í upphafi sumars, bjartir dagar og gróður að springa út. Nemendur þriðja bekkjar vörðu miklum tíma utandyra síðastliðna viku og var áhersla á útivist og útiveru. Nemendur fóru meðal annars í rannsóknarferð í Stangarbakkafjöru, yndislestur utandyra, búa til fuglafræskúlur upp í Skálamelsskógi og farið í heimsókn í Grobbholt á Skógargerðismel.

Í Grobbholti var vel tekið á móti nemendum. Nemendur fengu að skoða lömbin, kanínur og hænur auk þess að fá smá listhrútasýningu. Nokkrir nemendur týndu andaregg.

Öll fengu þau kex og leyst út með smá gjöf. Nemendur voru ánægðir með heimsóknina og ferðina enda mikilvægt að upplifa sitt nánasta umhverfi, náttúruna og gróðurinn sem má næstum því heyra springa út eftir því sem líður á sumarið. Við þökkum bændum í Grobbholti fyrir móttökurnar.