Útskrift úr grunnskóla - til hamingju

Útskrifaðir nemendur tíunda bekkjar í stiganum
Útskrifaðir nemendur tíunda bekkjar í stiganum

Íslenski fáninn blaktir við hún. Nemendur tíunda bekkjar kvöddu skólann sinn í dag eftir tíu ára skólagöngu með skólaskírteini í hönd. Hvert og eitt heldur sína leið með eigin markmið og stefnu í lífinu. Skólinn óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju og velfarnaðar á lífsins leið.

Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri kvaddi nemendur en 31 nemandi útskrifaðist frá Borgarhólsskóla í dag. Hún sagði m.a. að í dag væri dagur sem nemendur litu um öxl og horfðu fram á við í senn eftir að hafa lokið einum kafla tilverunnar. Þórgunnur lagði ríka áherslu á þakklæti og kærleika í skilaboðum sínum til útskriftarnema. Menntun er ekki aðeins lærdómur heldur að læra að læra, ekki bara vita heldur hvar og hvernig má finna þekkingu. Auk þess ræddi hún um fjölbreytileikann að öll erum við ólík, hvert og eitt okkar. Enginn er eins, engum til meins. Þórgunnur ræddi að lokum um að menntun án kærleika er eins og skip án kompáss. Þekking án samkenndar er tómið eitt og gáfur án góðvildar geta hreinlega verið hættulegar. Stærsta viðurkenningin er alltaf sú að vita það sjálfur að maður hefur gert sitt besta og aðeins betur í dag en í gær.

Nemendur fluttu lokaræðu, þökkuðu fyrir veruna í skólanum og fluttu starfsfólki skólans þakkarorð með hvers konar endurminningum. Umsjónarkennurum voru færð blóm og starfsfólki konfektkassi á kaffistofnuna. Auk þess gáfu nemendur og foreldrar skólanum peningagjöf sem ætlað er í útskriftarsjóð sem mun nýtast til kaupa á búnaði, húsgögnnum eða slíku fyrir nemendur skólans. Hér er mögulega komin ný hefð í skólastarfinu? Að lokinni athöfn var boðið upp á hressingu og jafnframt tekin mynd í stiganum venju samkvæmt.

Hrafnhildur Barkardóttir og Anna Lísa Eysteinsdóttir fluttu lokaræðuna

Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri