Útskrift úr grunnskóla - til hamingju

Nemendur tíunda bekkjar kvöddu skólann sinn í dag eftir tíu ára skólagöngu með skólaskírteini í hönd. Hvert og eitt heldur sína leið með eigin markmið og stefnu í lífinu. Skólinn óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju og velfarnaðar á lífsins leið.

Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri kvaddi nemendur og þakkaði þeim samfylgdina. Hún fjallaði um ferðalag nemenda gegnum grunnskólagönguna og þann þroska sem nemendur öðlast á þeirri ferð. Menntun snýst ekki aðeins um einkunnir og þekkingu heldur að læra að takast á við áskoranir, samvinnu, sýna ábyrgð og þroskast sem manneskja. Þórgunnur þakkaði jafnframt foreldrum og starfsfólki fyrir stuðninginn og þátt í velgengni nemenda. Hún hvatti nemendur til að mæta framtíðinni af hugrekki og bjartsýni, læra af mistökum sínum og hafa trú á sér. Veröldin þyrfti á góðvild að halda, virðingu og að fjölbreytileiki og kærleikur séu meðal mikilvægustu gilda tilverunnar. Framtíðin ræðst af þeim ákvörðunum og því framlagi sem hver einstaklingur velur að leggja til samfélagsins.

Þórgunnur sagði, „að mistök eru ekki endapunktur heldur upphaf lærdóms“ og bætti við að menntun án kærleika er eins og skip án kompás og hvað sem nemendur taki sér fyrir hendur í lífinu, að gera það með kærleika.

Berglind Ólafsdóttir og Jóna Björk Gunnarsdóttir, umsjónarkennarar afhentu nemendum vitnisburð og rós sem þakklætisvott fyrir samfylgdina.

Arnar Páll Vilhjálmsson og Inga Björg Brynjúlfsdóttir, fulltrúar nemenda fluttu kveðjuorð árgangsins að áratug liðnum. Þau lýstu því hversu óraunverulegt það væri að grunnskólagöngunni væri nú lokið og hópurinn standi nú allur á tímamótum. Þau þökkuðu starfsfólki skólans; fyrir kennsluna, þolinmæðina og allan stuðning. Þá sérstaklega umsjónarkennurum sínum. Kennarar kenndu ekki aðeins námsgreinar heldur sömuleiðis hvernig á að fara í gegnum erfiðleika, sigrast á streitu og vinna með áskoranir unglingsáranna. Arnar Páll og Inga Björg rifjuðu upp áhugaverðar og skemmtilegar sögur frá skólagöngunni og lýstu sterkum bekkjaranda innan hópsins. Þá færðu þau umsjónarkennurum sínum gjafir sem tákn um þakklæti og virðingu.

Venju samkvæmt var tekin hópmynd í stiganum fræga og boðið upp á léttar veitingar.

Með bros á vör, minningar í farteskinu og framtíðina fram undan kvöddu nemendur grunnskólann sinn í síðasta sinn. Skólasamfélagið óskar þeim farsældar á nýjum leiðum og við treystum því að þau láta gott af sér leiða í framtíðinni.

Arnar Páll og Inga Björg