Venjulegur Verkstæðisdagur

Það er löng hefð fyrir Verkstæðisdeginum í Borgarhólsskóla. Skólastarfið er með afar óhefðbundu sniði þann daginn, nemendur mæta með foreldrum, öfum og ömmum, systkinum, frændum og frænkum. Skólinn er öllum opinn þennan skemmtilega dag.

Jólastjarna, skraut, jólasveinakönglar, glassúr í lit og piparkökur, vaffla, kakó og kaffi. Allt þetta og miklu fleira einkennir Verkstæðisdag Borgarhólsskóla. Kennslustofum er breytt í verkstæði þar sem nemendum er boðið að föndra jólaskraut eða gjafir ásamt fjölskyldum og vinum. Skólinn leitast við að vera umhverfisvænn og hugmyndaríkur svo efniviðurinn í föndrinu var að mestu endurnýtanlegur s.s. krukkulok, glerkrukkur, dagblöð, morgunkornspakkar, könglar, greinar, textílefni o.fl.

Nemendur tíunda bekkjar opna kaffihús í sal skólans og selja heimatilbúna mæru. Gestir gátu gætt sér á skinkuhornum, skúffuköku, vöfflum með rjóma og fengið rjúkandi heitt og gott súkkulaði.

Borgarhólsskóli var fullur af brosandi fólki í dag sem flakkaði á milli verkstæða og reglulega ánægjulegt að sjá fjölskyldur föndra saman hvers konar muni.

Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur koma fram og spila jólalögin fyrir gesti, fylla foreldra stolti og draga fram létt og fallegt bros á hverjum sem heyra vill.

Markmiðið með deginum er að efla sköpunarhæfni og gleði og styrkja um leið tengsl heimilis og skóla.


Athugasemdir