Verkstæðisdagur á bak við grímuna

Þær Heiða og Solla skrá fólk inn í skólann
Þær Heiða og Solla skrá fólk inn í skólann

Það er löng hefð fyrir Verkstæðisdeginum í Borgarhólsskóla. Hann byrjaði sem fastur liður í skólastarfinu fyrir kjör fyrstu konu í forsetaembætti. Skólastarfið er með afar óhefðbundu sniði þennan dag, nemendur mæta með foreldrum, öfum og ömmum, systkinum, frændum og frænkum. Skólinn er jafnframt öllum opinn þennan skemmtilega dag. Vegna covid-19 var þátttaka í deginum ýmsum kvöðum háð og þurfu gestir m.a. að framvísa neikvæðu hraðprófi þegar komið var í skólann.

Skrautkrukka, englar, jólapokar, jólatré og svo margt fleira sem fólk gat föndrað. Allt þetta og miklu fleira einkennir Verkstæðisdag Borgarhólsskóla. Kennslustofum er breytt í verkstæði þar sem nemendum er boðið að föndra jólaskraut eða gjafir ásamt fjölskyldum og vinum.

Nemendur 10. bekkjar opna kaffihús í sal skólans og selja heimatilbúna mæru. Gestir gátu gætt sér á skinkuhornum, vöfflum með rjóma, skúffuköku og fengið rjúkandi heitt og gott súkkulaði.

Borgarhólsskóli var fullur af brosandi fólki á bak við grímurnar í dag sem flakkaði á milli verkstæða og reglulega ánægjulegt að sjá fjölskyldur föndra saman hvers konar muni.

Markmiðið með deginum er að efla sköpunarhæfni og gleði og styrkja um leið tengsl heimilis og skóla.

Hirðljósmyndari skólans var á ferðinni og má sjá myndir frá deginum HÉR.


Athugasemdir