- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Nemendur tíunda bekkja vörðu nýlega viku til að fræðast og kynnast vinnu í tengslum við sjálfsþekkingu, framtíðarsýn og jákvæðu lífsviðhorfi. Farið var í heimsókn í Framhaldsskólann á Húsavík þar sem vel var tekið á móti hópnum með áhugaverðri kynningu og veitingum. Fulltrúar Framhaldsskólans á Laugum kynntu starfsemi sína. Sömuleiðis bauðst þeim fjarkynning frá Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Farið var yfir námsframboð og -brautir.
Íslandsbanki hélt kynningu um fjármál, ábyrgð og mikilvægi skipulagningar í fjármálum til framtíðar. Þá fóru nemendur í heimsókn til stéttarfélaganna og fengu kynningu hjá Framsýn. Jafnframt fóru nemendur á Stéttina til að fræðast fjölbreyttar um náms- og starfsleiðir.
Sérstök áhersla vikunnar var áhersla á persónulegan þroska, jákvætt lífsviðhorf og seiglu. Hluti af því var fyrirlestur Þorgríms Þráinssonar sem fjallar um vaxtarhugarfar, ástríðu og mikilvægi þess að gefast ekki upp þrátt fyrir áskoranir. Nemendur fengu tækifæri til að rökstyðja hvernig jákvætt hugarfar og seigla geta haft áhrif á líðan, árangur og framtíðarmöguleika.
Nemendur unnu að gerð ferilskrár og færnimöppu, greindu eigin áhugasvið, styrkleika og áskoranir. Sömuleiðis að móta raunhæfar framtíðaráætlanir út frá sjálfsþekkingu. Tekið var mið af eigin áhugasviði þegar mögulegt nám og störf var kannað. En hluti af vikunni var að fara í vinnustaðaheimsókn og völdu nemendur með aðstoða kennara starfsvið út frá áhuga.
Þau hæfniviðmið sem unnið er með eru m.a.; að rökstyðja mikilvægi jákvæðs lífsviðhorfs, vaxtarhugarfars og seiglu og að gera sér grein fyrir eigin áhugasviði, styrkleikum og áskorunum, móta sér raunhæfa framtíðaráætlun út frá sjálfsþekkingu svo dæmi séu tekin. Áhugaverð vika og árangursrík. Við þökkum öllum þeim sem komu að skipulagningu hennar kærlega fyrir aðstoð og stuðning.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
