Áfram í Fiðringi

Úr atriði hópsins
Úr atriði hópsins

Fiðringur á Norðurlandi er hæfileikakeppni grunnskólanna að fyrirmynd Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Þetta er í annað skipti sem Fiðringur fer fram og í ár tóku tólf skólar þátt af Norðurlandi. Haldnir voru tvær undankeppnir og síðasta vetrardag var Borgarhólsskóli með atriði í seinni undankeppninni. Atriðið okkar komast áfram í lokahátíð sem verður haldin í Hofi n.k. þriðjudagskvöld.

Fiðringur hefur verið skylduvalgrein meðal nemenda í áttunda, níunda og tíunda bekk. Leiðbeinandi hópsins er Arnþór Þórsteinsson. Nemendur sömdu sitt eigið atriði og hafa æft af kappi alla vorönnina undir handleiðslu Arnþórs og er mikil áhersla lögð á sjálfstæð og lýðræðisleg vinnubrögð, hugmyndin og útfærslan kemur frá nemendum sjálfum. Einnig sér hópurinn alfarið um listræna útfærslu hvað varðar búninga, leikmynd, sviðhreyfingar, ljós og hljóð þannig að þátttaka í Fiðringi er heljarinnar skóli í sjálfu sér. Hápunkturinn er svo að hitta hin liðin og sýna afraksturinn á leiksviði með allri leikhústækninni og töfrunum. Við erum reglulega stolt og ánægð með nemendur okkar.

Hér eru nokkrar myndir frá atriðinu.


Athugasemdir