Baráttudagur gegn einelti

Nemendur faðma og knúsa skólann sinn
Nemendur faðma og knúsa skólann sinn

Alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti. Í þjóðarsáttmála sem undirritaður var þann 8. nóvember 2011 segir: Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er“. Allir dagar eiga að vera gegn einelti en þessi dagur minnir okkur sérstaklega á hvílíkt böl um ræðir, sem ekki er eingöngu bundið skólum heldur samfélaginu öllu.

Undanfarin ár höfum við unnið að ýmsum viðfangsefnum í tengslum við þennan dag. Í ár hittust vinabekkir skólans; fyrsti og sjötti, annar og sjöundi og þannig upp í fimmta og tíunda. Hver hópur vann að allskonar samvinnu- og vináttuverkefnum. Eins og að hjálpast að við að perla og skrifa falleg skilaboð þar sem afrakstur var festur upp á vináttutré. Nemendur bökuðu saman piparkökur, spiluðu tölvuleiki, byggðu byggingar í minecraft, spiluðu á spil og gerðu óróa úr eigin sköpunarverki.

Eftir vinabekkjarhitting fóru nemendur hönd í hönd saman út að faðma skólann sinn. Eftir faðmlagið var boðið upp á heitt kakó og huggulega samveru.

Myndir frá deginum má finna hér.

Hér má finna efni á vefsvæði Menntamálastofnunar varðandi viðfangsefni dagsins fyrir foreldra, börn og ungmenni og fagfólk sömuleiðis.

Hér má sjá stutt fræðslumyndband sem ætlað er foreldrum varðandi forvarnir, einelti og samskipti.

 

 

 


Athugasemdir