Bólusetning við COVID-19 fyrir nemendur í 7.-10. bekk

Nú í ágúst verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára.
Bólusett verður í Íþróttahöllinni á Húsavík miðvikudaginn 18. ágúst 2021. Árgangar 2006-2007 kl.
16:00 og árgangar 2008-2009 kl. 16:30. Strikamerki verður sent með SMS í símanúmer
foreldris/forráðamanns. Ef þú ætlar ekki að nýta bólusetningu fyrir þitt barn vinsamlegast hafðu
samband við Heilsugæslu í síma 4640500.
Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða
senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september
býðst bólusetning síðar í haust.


Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech og er það bóluefni sem fyrst fékk markaðsleyfi,
bæði fyrir fullorðna og síðar fyrir börn á þessum aldri. Það er komin töluverð reynsla á notkun þess
fyrir þennan aldurshóp erlendis og hefur gengið mjög vel.
Eins og við aðrar bólusetningar eru algengustu aukaverkanir óþægindi þar sem stungan var gerð og
slappleiki/þreyta, hiti og verkir (höfuðverkur eða vöðva- og liðverkir) fyrsta sólarhringinn eftir
bólusetninguna, stundum í nokkra daga. Það má nota parasetamól eða íbúprófen í skömmtum skv.
fylgiseðli við þessum aukaverkunum.


Það eru líka til sjaldgæfar aukaverkanir þar sem kemur fram bólga í gollurshúsi (poki utan um hjartað)
eða í hjartavöðvanum sjálfum, 2-3 vikum eftir bólusetninguna, oftast eftir seinni skammt og
algengara hjá piltum en stúlkum. Þótt þessar aukaverkanir geti verið óþægilegar og jafnvel
uggvekjandi, þá jafnar ástandið sig oftast með hvíld og bólgueyðandi verkjalyfjum. Ef barn fær
brjóstverk, talar um skrítinn hjartslátt eða virðist andstutt í hvíld eftir bólusetninguna þarf að leita til
læknis.


Það er verið að skoða hvort breytingar á tíðahring, bæði litlar eða miklar blæðingar, hafi tengsl við
bólusetningu með þessu bóluefni. Stúlkur á aldrinum 12-15 ára hafa sumar þegar byrjað á blæðingum
en aðrar ekki. Það er ekki víst að allar stúlkur á þessum aldri átti sig á því ef breytingar verða þar sem
blæðingar eru yfirleitt óreglulegar fyrsta árið eftir að þær hefjast. Eins finnst þeim mörgum óþægilegt
að ræða um slíkt og láta ekki endilega vita ef eitthvað er öðruvísi en áður. Það er því mikilvægt að
þær fái upplýsingar um að það sé rétt að ræða þetta og hafi tækifæri til að gera það, ef ekki heima þá
mögulega við skólahjúkrunarfræðing eða annan heilbrigðisstarfsmann.

 


Athugasemdir