Börnin hjálpa börnum

Nemendur fimmta bekkjar með viðurkenningarskjal að lokinni söfnun
Nemendur fimmta bekkjar með viðurkenningarskjal að lokinni söfnun

Nemendur fimmta bekkjar gengu í hús á Húsavík í marsmánuði til að safna fyrir ABC-barnahjálp. Alls söfnuðust 199.691 kr. sem er dágott. ABC-barnahjálp er íslenskt hjálparstarf sem stofnað var 1988 í þeim tilgangi að veita nauðstöddum börnum varanlega hjálp. ABC starfar í 8 löndum í Afríku og Asíu. Skjólstæðingar ABC eru þeir umkomulausu og markmiðið er að hjálpa þeim að lifa lífinu með reisn. Menntun er mikilvægasti hlekkurinn í að rjúfa vítahring fátæktar.

Verkefnið er árviss viðburður í skólastarfinu og reglulega fáum við heimsókn í skólann frá einstaklingum sem starfa við samtökin með fræðslu og myndir úr starfinu á vettvangi út í hinum stóra heimi.


Athugasemdir