Dagur íslenskrar tungu og upphaf Stóru upplestrarkeppninnar

Við upphaf Stóru upplestrarkeppninnar
Við upphaf Stóru upplestrarkeppninnar

Dagur íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, 16. nóvember, samkvæmt tillögu menntamálaráðherra frá árinu 1996.

Dagurinn markar upphaf Stóru upplestrarkeppninnar í sjöunda bekk. Í tilefni að því var haldin samkoma í Salnum þar sem nemendur sjötta & sjöunda bekkjar komu saman. Katla Marín Þorkelsdóttir flutti ljóðið Ég bið að heilsa en hún sigraði keppnina fyrir ári síðan. Nemendur æfðu sig á tungubrjótum, sungu lög aftur á bak og áfram og leystu gátur hvar íslenskri tungu er beitt til að þvælast fyrir lausninni. Íslendingar eiga a.m.k. 58 orð yfir snjó og það er hægt að segja fokk á svo marga vegu.

 


Athugasemdir