- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Starfsfólk skólans varði deginum í endurmenntun þar sem farið var yfir niðurstöður innra mats og Skólapúlsins auk þess sem horft var til styrkleika skólastarfsins og áherslna til framtíðar. Í hópavinnu ræddi starfsfólk meðal annars hvað hefði gengið vel á skólaárinu, hvaða vinnubrögð hefðu reynst árangursrík og hvað nemendur og foreldrar segðu jákvætt um skólann. Einnig var rætt um starfsandann, áhrif skólans á nærsamfélagið og hvað mikilvægt væri að halda áfram að gera.
Á samræðuvettvangi voru lykilþættir skólastarfsins teknir til umræðu, svo sem námsárangur, líðan nemenda, samskipti við foreldra, starfsandi og stuðningur við nemendur. Í lok dags dró hver og einn saman það sem helst stóð upp úr ásamt hugmyndum að umbótum fyrir næsta skólaár.
Dagurinn einkenndist af faglegum samræðum, samvinnu og sameiginlegri sýn á áframhaldandi þróun Borgarhólsskóla.

|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
