Félagsvist með eldri borgurum

Það er mikilvægt að skólar og nemendur eigi gott samstarf við samfélagið í kringum sig. Með því að taka þátt í samfélagsverkefnum læra nemendur að bera virðingu fyrir öðrum, sýna ábyrgð og efla félagsfærni sína.

Nemendur sjöunda bekkjar heimsóttu eldri borgara í Hlyn og spiluðu félagsvist. Þannig verða til tengsl milli kynslóða. Slíkar stundir gleðja eldri borgara og veita nemendum tækifæri til að læra af reynslu þeirra og lífssýn. Nemendum bauðst hressing, öll nutu stundarinnar og við þökkum fyrir góðar móttökur.