Fokk me - fokk you

Nemendur sjötta og sjöunda bekkjar annarsvegar og hinsvegar áttunda bekkjar fengu fræðslu í vikunni frá verkefninu Fokk me-Fokk you sem fjallar um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna. Hún er ætluð unglingum og ungmennum, foreldrum þeirra og aðstandendum og starfsfólki sem starfar með unglingum.

Fræðslan sjálf skiptist í þrjá hluta, í fyrsta hluta fjallað um sjálfmyndina og nemendur vaktir til umhugsunar hvað það sé nákvæmlega sem þau stjórnast af. Rætt um hinsegin málefni og rætt um hve mikilvægt er að sýna hvert öðru virðingu.

Í öðrum hluta er farið yfir hvaða áhrif fjölmiðlar og samskiptamiðlar hafa á okkur og tekin dæmi úr netheiminum. Farið er yfir notkun samfélagsmiðla eins og facebook, instagram og snapchat svo dæmi séu tekin og rætt um dekkri hliðar þeirra. Rætt er sérstaklega um stafrænt kynferðisofbeldi t.d. dreifingu nektarmynda og óumbeðnar dickpics.

Lokahlutinn á fræðslunni fjallar í megindráttum um kynheilbrigði, kynlíf, klám og hvernig það síðastnefnda getur haft óheilbrigð áhrif á samskipti kynjanna. Rætt er á opinskáan hátt um mýtur, pressuna sem fylgir unglingsárunum og hvers vegna það ætti ekki að nota klám sem mælitæki á heilbrigt kynlíf. Nemendur eru hvattir til að ræða alla þessa hluti á opinskáan hátt og leggjum áherslu á að þau séu samkvæm sjálfum sér. Í gegnum alla fræðsluna er stuðst við myndir, reynslusögur ungs fólk, skjáskot frá ungu fólki og skemmtileg fræðslumyndbönd til að brjóta upp fræðsluna.

 

 

Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi völdu fræðsluna Fokk Me-Fokk You sem besta verkefnið í opnum flokki á vettvangi frítímans á aðalfundi Samfés 2017.


Athugasemdir