Gjöf til kaupa á útileiktækjum

Fulltrúar Kvenfélagsins Öldunnar á Tjörnesi ásamt skólastjóra.
Fulltrúar Kvenfélagsins Öldunnar á Tjörnesi ásamt skólastjóra.

Nýlega komu fulltrúar Kvenfélagsins Öldunnar á Tjörnesi með peningagjöf til skólans að upphæð 200.000 kr. Styrknum er ætlað til kaupa á útileiktækjum á skólalóð skólans. Við þökkum Öldunni og kvenfélagskonum kærlega fyrir gjöfina sem mun nýtast vel í uppbyggingunni á skólalóð skólans.