Grunnskólamót HSÍ í handbolta

Grunnskólamót HSÍ fór fram á Akureyri í dag þar sem nemendur í sjötta bekk úr nokkrum grunnskólum öttu kappi í handbolta. Leikið var í stúlkna-, drengja- og blönduðum liðum með fjóra leikmenn á vellinum í senn. Fyrirkomulagið stuðlar að virkri þátttöku allra og reynir á samvinnu, leikni og útsjónarsemi.

Mót sem þessi hafa mikið gildi í skólastarfinu. Nemendur fá tækifæri til að kynnast jafnöldrum úr öðrum skólum, takast á við nýjar áskoranir, efla liðsheildina og öðlast reynslu af því að koma fram fyrir hönd skólans síns. Íþróttagleði, heilbrigð keppni og góð samskipti eru þar í fyrirrúmi.

Hópur nemenda úr sjötta bekk skólans sótti mótið sem gekk reglulega vel og ferðin hin besta. Árið 1969 urðu Völsungsstúlkur Íslandsmeistarar í handknattleik og árið 1970 vann Völsungur þrjá Íslandsmeistaratitla í handknattleik kvenna. Mögulega rís handboltaíþróttin á Húsavík í kjölfarið?