Heimsókn í Freyju

Landhelgisgæslan fangar aldarafmæli um þessar mundir. Gæslan gerir meðal annars út tvö varðskip, þrjár þyrlur og eina flugvél. Varðskipin Þór og Freyja sigla núna hringinn um landið til að heimsækja hafnir að þessu tilefni. Freyja kom til Húsavíkurhafnar fyrir helgi og bauð nemendum í heimsókn auk þess sem gestum og gangandi var boðið að skoða skipið um helgina.

Nemendur fengu túr um skipið og kynntust starfseminni um borð. Boðið tókst reglulega vel og voru krakkarnir til fyrirmyndar. Hver veit nema eitthvert þeirra muni starfa fyrir gæsluna en skipherrann er búsettur á Húsavík og vélstjórinn fyrrverandi nemandi skólans. Við þökkum gæslunni kærlega fyrir boðið og óskum þeim til hamingju með áfangann.