- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Í forvarnaráætlun skólans er lögð áhersla á að nemendur fái fræðslu frá samfélagslögreglu. Í samfélagslöggæslu er reynt að efla jákvæð tengsl milli lögreglu og íbúa, sem og að auka traust og sýnileika. Við fengum lögregluna í heimsókn til okkar í dag.
Nemendur fimmta, sjötta og sjöunda bekkjar fengu fyrirlestur og kynningu varðandi netöryggi, samfélagsmiðla, samskipti, ofbeldi, útivistartíma og umferðaröryggi. Að kynningu lokinni var boðið upp á spjall og fengu nemendur að spyrja spurninga og kynnast starfi lögreglunnar betur.
Heimsóknin gekk einstaklega vel og ánægjulegt að sjá hversu vel lögreglumönnunum var tekið af nemendum og starfsfólki skólans. Nemendur sýndu heimsókninni mikinn áhuga og tóku virkan þátt í þeim umræðum. Við þökkum lögreglumönnunum kærlega fyrir komuna. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að kynnast þeim sem sinna öryggi og þjónustu í samfélaginu og sjá að lögreglan er aðgengileg og tilbúin að aðstoða þegar á þarf að halda.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
