Hvalaskólinn og steypireiðar

Á útstími
Á útstími

Húsavík er hvalaskoðunarhöfuðborg Evrópu og hingað leggja mörg leið sína til að berja hvalina augum. Í fimmta bekk höfum við verið með hvalaskóla í samstarfi við Hvalasafnið á Húsavík. Í vikunni fóru nemendur fimmta bekkjar einmitt í hvalaskoðun sem lokahnykk í vinnu nemenda með flóru og faunu.

Nemendur unnu með fæðukeðjur og vistkerfi og fóru í vettvangsferð út á Skjálfanda til að tengja vinnuna við raunheiminn, kynnast dýrum við Íslandsstrendur og hvernig hvalir lifa. Í ferðinni sáu nemendur nokkrar hnísur og tvær steypireiðar sem hefur ekki áður gerst í hvalaskólanum. Siglt var um Lundey og sást mikið af fugli. Ferðin sóttist vel í blíðu veðri og á heimstíminu fór sólina að skína þegar nemendur fengu kakó og snúð. Nemendur voru ánægðir með ferðina þrátt fyrir að bæði nokkrir nemendur og starfsfólk hafi fundið fyrir sjóveiki og skilað morgunmatnum í hafið. Við þökkum Hvalasafninu og Norðursiglingu fyrir samstarfið.

Myndir úr ferðinni má sjá HÉR.