Jól í skókassa

57 skókassar bíða þess að verða opnaðir í Úkraínu.
57 skókassar bíða þess að verða opnaðir í Úkraínu.

Skólinn tekur venju samkvæmt þátt í verkefninu Jól í skókassa. Það markar gjarnan upphaf jólanna í skólanum. Það eru KFUM og KFUK samtökin sem halda utan um verkefnið. Verkefnið er alþjóðlegt og felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.

Skókassarnir verða sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna. Atvinnuleysi er þar mikið og ástandið víða bágborið. Á því svæði þar sem jólagjöfunum verður dreift ríkir mikil örbirgð. Skókössunum verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.

Nemendur skólans komu saman í teymum og/eða árgöngum og sumir á bekkjarkvöldum með hinar ólíku gjafir og hluti til að pakka inn í kassana. Hverjum kassa er vandlega pakkað inn í jólapappír, þeim safnað saman og sendir suður til Reykjavíkur. Þaðan verður þeim komið til Úkraínu til bágstaddra og þeirra sem minna mega sín. Nemendur sendu 57 kassa í verkefnið og sýna með því samhug og kærleika í verki á hátíðarstundu.

Nemendur í áttunda bekk að pakka skókössunum inn og fylla þá með hvers konar glaðningi.


Athugasemdir