Jólatré skólans

Á heimleið eftir skógarhöggið
Á heimleið eftir skógarhöggið

Það er árviss viðburður í Borgarhólsskóla að nemendur sjöunda bekkjar sækja jólatré skólans sem prýða mun Salinn á Litlu jólum. Það er ekki yfir langan veg að fara en tréð sem er hið myndarlegasta er sótt í skógræktina í Melnum í Húsavíkurfjalli. Nemendur fóru ásamt kennurum að sækja tréð sem umhverfisstjóri Norðurþings var búinn að velja.

Krakkarnir hjálpuðust að við að bera tréð og koma því niður að skólanum. Þegar þangað var komið fengu þreyttir, kaldir en ánægðir ferðalangar heitt kakó og piparkökur sem nemendur sjötta bekkjar biður með handa þeim.


Athugasemdir