Met í fingraprjóni

Um tveir og hálfur fótboltavöllur, um 80 hæða bygging eða lengd á meðal skemmtiferðaskipi. Með samstilltu átaki, mikill þrautseigju og samvinnu fingraprjónuðu drengir í fjórða bekk um 260 metra langan spotta. Skemmtileg áskorun þar sem hver og einn lagði sitt að mörkum og spottinn lengdist með hverri vikunni.

Það er ansi margt sem er hægt að áorka með samvinnu og samstilltu átaki.