Nemendur endurskoða skólareglur

Nemendur fimmta til tíunda bekkjar voru boðaðir á skólafund í dag til að ræða endurskoðun á skólareglum. Gildandi reglur eru nokkuð gamlar og mikilvægt að endurskoða þær. Nemendur ræddu reglurnar og menningu í skólanum, hvernig við getum í sameiningu skapað enn betra skólasamfélag.

Fundurinn var með nokkuð óhefðbundnu sniði þar sem nemendur fengu tækifæri til að ræða við skólafélaga á ólíkum aldri, skiptast á skoðunum og leggja fram hugmyndir að nýjum skólareglum.

Alls tóku um 160 nemendur þátt í fundinum og sátu þeir við 15 umræðuborð. Nemendum var skipt í aldursblandaða hópa og fóru þeir á milli borða í þremur umferðum. Við hvert borð sat starfsmaður sem stýrði umræðunum og skráði niður hugmyndir nemenda. Með þessu fyrirkomulagi fengu nemendur að kynnast ólíkum sjónarmiðum og ræða málin við fleiri en sína nánustu skólafélaga.

Umræðurnar snerust um þrjú meginviðfangsefni; góð samskipti og skólabrag, núverandi skólareglur og hvaða viðbrögð séu sanngjörn þegar reglur eru brotnar. Nemendur voru hvattir til að hlusta, sýna virðingu, rökstyðja skoðanir sínar og leita sameiginlegra lausna.

Fundurinn gekk reglulega vel og nemendur stóðu sig með prýði. Þau tóku virkan þátt, sýndu ábyrgð í umræðunum og komu með fjölda áhugaverðra ábendinga, skynsamlegra lausna og góðra hugmynda. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá nemendur á ólíkum aldri ræða saman af virðingu og vinna að sameiginlegu markmiði.

Nemendur í fyrsta til fjórða bekkjar fá einnig tækifæri til að taka þátt í verkefninu með einfaldara fundarfyrirkomulagi í sínum bekkjum undir leiðsögn kennara. Þannig verður rödd allra aldurshópa hluti af vinnunni.

Næsta skref er að taka saman allar tillögurnar og nýta þær við endurskoðun skólareglnanna. Afrakstur dagsins sýnir vel hversu mikilvægt er að gefa nemendum raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif á eigið skólasamfélag.

Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir frábæran fund. Það er sannarlega ástæða til að vera stolt af þessum unga og öfluga hópi.