Nemendur heimsækja Þeistareykjastöð

Nemendur sjöunda bekkjar lögðu leið sín upp að Þeistareykjum í vikunni. Viðfangsefni nemenda í náttúrugreinum um þessar mundir eru orka, orkugjafar og auðlindir. En Þeistareykjastöð var fyrsta jarðvarmavirkjunin sem Landsvirkjun reisti frá grunni. Heimsóknin er liður í verkefni Landsvirkjunar sem kallast Nám í nærsamfélag en Landsvirkjun kostaði heimsókn nemenda.

Stöðin var gangsett 17. nóvember árið 2017, þegar fyrri 45 megavatta vélasamstæðan var ræst. Sú síðari var gangsett 18. apríl árið eftir. Uppsett afl stöðvarinnar er 90 megavött og getur hún unnið 740 gígavattstundir á ári. Við byggingu stöðvarinnar var meginmarkmiðið að reisa hagkvæma og áreiðanlega stöð sem tekur mið af umhverfi sínu og náttúru.

Hildur Vésteinsdóttir verkefnastjóri hjá Landsvirkjun tók á móti hópnum og fór yfir öryggisreglur og fræddi nemendur um virkjanir Landsvirkjunar. Nemendur fengu kynningu á gufuaflsvirkjun og fengu loks að skoða stöðina sjálfa og fylgjast með ferlum gufunnar í gegnum stöðina. Auk þess kíktu nemendur á borholur og fundu orkuna í holunum.

Heimsóknin tókst vel og sýndu nemendur stöðinni og viðfangsefninu mikinn áhuga. Við þökkum Landsvirkjun kærlega fyrir ákaflega gott boð og heimsókn.