Niðurstöður samræmdra könnunarprófa

Tækifæri til að rýna í niðurstöðuna
Tækifæri til að rýna í niðurstöðuna

Nemendur bæði fjórða og sjöunda bekkjar fengu í dag afhendar niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum. Fyrirlögnin var með rafrænum á haustdögum og gekk ágætlega. Prófin mæla afmarkaða þætti og því ætti að líta á einkunnina sem afmarkaða einkunn. Raðeinkunn sem birtist líka á vitnisburðinum segir mest til um gengi nemandans. Raðeinkunnin segir til um hvar nemandinn stendur í samanburði við alla sem tóku prófið.

Mörg atriði sem nemendur hafa hæfni til, eru ekki metin í prófunum. Sköpun, frumkvæði, gagnrýnin hugsuna, félagshæfni, þrautseigju, samvinnu o.fl. eru þættir sem samræmd könnunarpróf mæla ekki. Það eru hins vegar allt þættir sem skipta miklu máli í daglegu lífi og eru stór hluti af Aðalnámskrá grunnskóla.

Við hvetjum foreldra til að rýna í niðurstöðurnar. Foreldrum býðst að sjá próf barna sinna og að eiga samal við umsjónakennara um niðurstöður.


Athugasemdir