Ókeypis ráðgjöf fyrir ungt fólk

Bergið er lágþröskulda ráðgjafasetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára. Þjónustan er frí og engin tilvísun er nauðsynleg. Fulltrúi Bergsins á Akureyri Erla Friðriksdóttir kynnti þjónustuna fyrr unglingunum í morgun. Til stendur að vera með mánaðarlega viðtalstíma á Húsavík.

Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára. Með fræðslu og stuðningi finnum við leiðir í sameiningu að bættri líðan og eflum virkni ungmenna í samfélaginu. Þjónustan miðar að því að efla þátttöku og þekkingu ungmenna sem og að auka tengsl þeirra við samfélagið.

Sjá nánar á bergid.is