- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Farsæld barna
- Byrjendalæsi
Við erum í miðri íþróttaviku Evrópu og margskonar viðburðir í tengslum við það í boði. Ólympíuhlaup ÍSÍ for fram kringum skólann í gær. Hlaupið kallaðist áður Norræna skólahlaupið og hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan.
Hringurinn var um kílómetri að lengd og nemendur höfðu 60 mínútur til að hlaupa eins marga hringi og þeir gátu. Þau allra hörðustu hlupu fimmtán hringi. Það er sama veglengd og frá Húsavík og að afleggjara niður á Sandsbæi í Aðaldalshrauni. Eftir hvern hring fékk hver nemandi stimpil. Þátttaka var reglulega góð og virkni nemenda til mikillar fyrirmyndar. Metnaður fyrir hlaupið var áberandi og umgjörð öll hjá íþróttakennurum til sóma. Samanlagður kílómetrafjöldi nemenda í hlaupinu var 1433 km en hringvegurinn um Ísland er 1321 km. Að loknu hlaupi var þátttakendum boðið upp á safa.
Á morgun geta foreldrar sótt fyrirlesturinn Að eiga börn í íþróttum kl. 17:00 í Framhaldsskólnum. Í vikunni er foreldrum boðið upp á fræðsluerindi Óstöðvandi í topp tilfinningalegu ástandi auk heilsubótargöngu, opnar æfingar með Skokka, sundleikfimi og diskósund. Stútfull hreyfidagskrá fyrir öll alla vikuna.
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |