- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Skólaárinu 2025-2026 er lokið hjá nemendum. Nemendur fyrsta til og með níunda bekkjar hittu kennarana sína í dag í hverskonar uppbroti, komu saman á söngsal og endað í pitsahlaðborði. Þórgunnur Reykjalín skólastjóri ræddi þar við nemendur á sal og hvatti krakkana til dáða, það eru alltaf tækifæri til bætingar í öllu. Að því loknu voru sungin nokkur lög. Umsjónarkennarar afhentu vitnisburð skólaársins. Búið er að opna fyrir birtingu á hæfnikortum í mentor og við hvetjum foreldra til að rýna í þau.
Þórgunnur ræddi við nemendur um frammistöðu og kaflaskil í skóla þar sem öll gera mistök, reyna aftur og vaxa sem einstaklingar. Hún þakkaði nemendum fyrir framlag sitt til skólasamfélagsins og hrósað þeim fyrir þrautseigju, sköpunargleði og vináttu. Þórgunnur hvatti jafnframt nemendur til að njóta sumarsins, hvíla sig, lesa, hreyfa sig og safna góðum minningum.
Við óskum nemendum okkar og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og hamingjuríkra daga.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
