- Skólinn
- Nemendur
- Foreldrar
- Jákvæður agi
- Bland í Borgó
- Byrjendalæsi
Nemendur mættu til skóla í morgun og skólaárið því formlega hafið. Þann 24. ágúst eru 280 nemendur skráðir í skólann og fækkun um 2,1% milli ára. Skólinn fylltist af lífi, eftirvæntingu og spennu. Sömuleiðis þeirri einstöku orku sem fylgir þegar nýtt tímabil hefst. Skólaárið verður vonandi lærdómsríkt, gjöfult og spennandi með margskonar nýjum áskorunum eins og breytt einkunnagjöf og símareglur.
Þórgunnur Reykjalín skólastjóri bauð nemendur velkomna í skólann og sérstaklega nýja nemendur. „Þetta er ykkar ár” sagði hún með vísan í að öll geri sitt besta þar sem enginn er fullkominn með hæstu einkunn, hleypur hraðast eða gerir aldrei mistök, „mistök eru sönnun þess að þú sért að reyna, að þú sért að læra og að þú sért að vaxa” bætti hún við. Að gera sitt besta þýðir einfaldlega að mæta til leiks með opnum huga, sýna seiglu þegar verkefnin verða erfið og þora að spyrja þegar maður veit ekki svarið. Þórgunnur hafði á orði að „með því að sýna hvert öðru hlýju og virðingu búum við til umhverfi þar sem öllum líður vel og allir geta blómstrað á sínum eigin forsendum.”
Þórgunnur ávarpaði foreldra sérstaklega í ræðu sinni í upphafi dags enda hlutverk þeirra ómetanlegt. Það er baklandið, fólkið sem hvetur og örugg höfn hvers og eins. Stuðningur foreldra er mikilvægur; að hlusta á sögur krakkanna yfir kvöldmatnum, aðstoða við kerfjandi verkefni eða hvetja til dáða. „Samstarf heimilis og skólasamfélagsins er lykillinn að því að við náum árangri. Þegar við vinnum saman sem ein liðsheild, með sömu markmið í huga, þá búum við til öruggt og hvetjandi net utan um börnin okkar”, sagði Þórgunnur.
Skólaárið 2026-2027 er hafið, verum næs og gleðjumst með hvert öðru.
|
Skólagarði 1 | 640 Húsavík Sími á skrifstofu: 464-6140 Netfang: skoli@borgarholsskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
