Skóladagatal næsta skólaárs 2025-2026

Skólaárinu 2024-2025 lýkur senn. Fjölskylduráð Norðurþings hefur staðfest tillögu að skóladagatali næsta skólaárs. Tillagan var sömuleiðis tekin fyrir í skólaráði og samþykkt. Skóladagatal skólans fyrir skólaárið 2025 - 2026 liggur fyrir og öllum aðgengilegt.

Skólastarf hefst þriðjudaginn 21. ágúst. Seinnipartinn í september fer fram samtal heimilis og skóla og skipulagsdagar. Í októbermánuði er haustfrí. Þemaviku má finna í nóvember og litlu jólin eru 19. desember. Nemendur mæta aftur til starfa á Þrettándanum, 6. janúar tvöþúsundtuttuguogsex. Í lok janúar er einn skipulagsdagur og í upphafi marsmánaðar er aftur samtal heimilis og skóla og skipulagsdagur. Páskahátíð er fyrr á ferðinni á næsta ári og hefst hún í upphafi apríl. Vetrarfrí er föstudaginn eftir sumardaginn fyrsta og Uppstigingardag. Vegna þess hvernig dagarnir raðast þá lýkur skóla þann 8. júní sumarið 2026.

Við gerð skóladagatals var haft samráð við og tekið tillit til annarar þjónustu, leikskóla, framhaldsskóla og fleiri þátta.

Sjá dagatalið HÉR.