Snjóskaflinn skal standa

Mennirnir mun ekki taka skaflinn
Mennirnir mun ekki taka skaflinn
Fyrir nokkru sendu nokkrir nemendur í öðrum og þriðja bekk bréf til bæjaryfirvalda vegna þess að snjóskaflinn sem þeir leika sér í væri reglulega tekinn. Einn daginn komu nemendur súrir inn úr frímínútum eftir að hafa horft upp á mennina frá bænum á gröfum taka leiktækið þeirra. Þeir settust niður á lausnafundi í anda Jákvæðs aga og úr varð umrætt bréf sem má sjá á facebooksíðu skólans.

Fyrir nokkru sendu nokkrir nemendur í öðrum og þriðja bekk bréf til bæjaryfirvalda vegna þess að snjóskaflinn sem þeir leika sér í væri reglulega tekinn. Einn daginn komu nemendur súrir inn úr frímínútum eftir að hafa horft upp á mennina frá bænum á gröfum taka leiktækið þeirra. Þeir settust niður á lausnafundi í anda Jákvæðs aga og úr varð umrætt bréf sem má sjá hér að neðan og birt á facebooksíðu skólans á sínum tíma.

Bréfið var tekið fyrir í framkvæmdanefnd sveitarfélagins þar sem eftirfarandi er bókað: Framkvæmdanefnd þakkar nemendum Borgarhólsskóla fyrir erindið og felur framkvæmda- og þjónustufulltrúa að tala við mennina sem taka snjóinn og segja þeim að hætta því svo krakkarnir geti leikið sér. Nemendum hefur því borist formlegt erindi þar sem þetta er tilkynnt og ljóst að skaflinn mun standa.


Athugasemdir