STEM námsferð til Bodø

Hluti starfsfólks Borgarhólsskóla fór ásamt starfsfólki frá Grænuvöllum í náms- og tækniferð til Noregs með STEM Húsavík. Hópurinn heimsótti First Scandinavian en það eru samtök sem voru stofnuð síðastliðin aldamót til að veita börnum og ungmennum jákvæða námsreynslu í vísindum, stærðfræði og tækni og efla áhuga á raunvísindum, stærðfræði og tækni.

Hópurinn vann með lego og gerði hverskonar tilraunir. Sömuleiðis fékk hópurinn innsýn í fjölbreyttar leiðir til að efla forvitni, sköpun og gagnrýna hugsun barna í gegnum STEM nálgunina. Farið var í skólaheimsókn á leikskóla sem vinnur markvisst með umhverfið og útikennslu allt árið um kring.

Ferðin tókst afar vel og til urðu dýrmætar hugmyndir og veitt starfsfólki innblástur sem mun nýtast í starfi.